Vefpóstur innskráning
Vefsíðugerð hýsing og umsjón: Bemar tækniþjónusta
Egils Guesthouse er fjölskyldufyrirtæki sem leigt hefur út húsnæði frá árinu 2010. Við bjóðum fjölbreytta gistimöguleika á besta stað í gamla bænum í Borgarnesi.  Um er að ræða lítið gamalt nýlega uppgert hús á tveimur hæðum með gistiaðstöðu fyrir allt að 9 manns. Einnig íbúð á einni hæð með gistiaðstöðu fyrir allt að 8 manns. Þá erum við með þrjár stúdioíbúðir sem hver um sig tekur 2 til 4 gesti.  Við höfum möguleika á að taka á móti 20-30 manna hópum. Húsið og íbúðirnar eru vel úr garði gerðar og þar eru öll helstu nútíma þægindi.
 
Hvort sem um er að ræða rólega dvöl fyrir tvo eða ævintýraferð fjölskyldunnar þá eru svona íbúðir og hús með öllum aðbúnaði mjög hentug lausn fyrir fríið. Í Borgarnesi og nágrenni er margt að skoða. Ýmis konar afþreying er í boði og í Borgarfrðinum eru margar útivistaperlur og sögustaðir. Hægt er að skipuleggja skemmtilegar dagsferðir til útivistar um allt vesturland frá Borgarnesi.
Áhugaverðir tenglar
Egils guesthouse, Egilsgötu 8 - 310 Borgarnesi. E-mail: info@egilsguesthouse.is.
Símar: Helga 6591918 / Kristín 8623121.
Visit West Iceland

Landnámssetur Íslands

Landbúnaðarsafn Íslands

Hvítá travel
Online booking
HúsÍbúðStudio